Torgið sem miðpúnktur hátíðarhalda á Siglufirði. Hvenær myndin var tekin veit ég ekki, en það er langt síðan.
Mér datt í hug að þessi mynd væri frá fullveldishátíðinni 17. júní 1944.
Hátíðarganga á Siglufirði
Fáni Verkamannafélagsins Þróttar fremst í hátíðargöngu á Siglufirði. Það væri nærtækast að ætla að þetta væri frá 1. maí, en ég held að þetta sé 17. júní 1944.
Skrúðganga á Siglufirði
Skrúðgangan er á leið niður Eyrargötu og að skólabalanum, þar sem hátíðarhöldin fóru fram.
Hátíðarhöld á skólabalanum
Aðalgatan
Aðalgatan ber nafn sitt með rentu. Þarna er fiskbúðin ennþá á horninu og Óli Thór verslaði með föt á Thórahorninu, sem núna er bankahornið.
Á útleið
Myndir er líklega frá 1969 og þarna er Siglfirðingur SI 150 á útleið. Sumarið 1969 var ég háseti á Siglfirðingi, nýkominn stúdent úr Menntaskólanum á Akureyri og fékk auðvitað strax uppnefnið "stúdentinn" eða "prófessorinn" um borð. Ég á góðar minningar frá þessu sumri.
Sjómannadagur 1964
Á sjómannadegi 1964. Þarna er Helgi Sveins að stjórna reiptogi á Hafnarbryggjunni.
Sjómannadagur 1964
... og þarna er Axel Schiöth í stakkahlaupi á Hafnarbryggjunni.