Sunnudaginn 20. júlí lögðum við af stað á Sigló KAI 192 með Trítla litla í eftirdragi. Leiðin lá suður Oslóarfjörð í átt til Jeløya.
Venjuleg leið smærri báta er innanvið eyjuna og þá siglt í gegnum þröngt sund í bænum Moss. Þar sem veðrið lék við okkur var stefnan sett um miðbik fjarðarins.
Við vorum sem sagt á leið til Hvaler-eyjanna sem eru undan bænum Fredrikstad. Eyjar þessar eru sumarparadís.
Það var mikið um báta á leiðinni, bæði seglbáta og vélbáta af öllum stærðum.
"Sigló" er 24 feta snekkja með 43 hesta Mercedes vél. Það er hægt að sperra "Sigló" upp í 10 hnúta (mílur) á klst., en besti gangur á vél og bát er 6 - 7 hnútar.
Um borð er bæði svefn- og eldurnaraðstaða og aftast er "baðpallur" með stiga. "Sigló" ferð því vel með okkur um borð.